Skip to main content

Sagan

Veislulist / Skútan hefur verið starfrækt frá árinu 1975, í eigu sömu aðila allan tímann og alltaf verið staðsett í Hafnarfirði.

Birgir Pálsson matreiðslumeistari og Eygló Sigurliðadóttir stofnuðu fyrirtækið, en synir þeirra þeir Birgir Arnar matreiðslumeistari, Sigurpáll Örn matreiðslumaður og Ómar Már rekstrafræðingur hafa tekið við rekstrinum hin seinni ár og sjá núna um allan rekstur.

Skútan var fyrst til húsa á Strandgötu í Hafnarfirði (þar sem Bókasafn HFJ er til húsa núna) og var vinsælasta skemmtihús bæjarins á þeim tíma ’75 – ‘82, þarna var rekið veitingastaður, veisluþjónusta og kaffitería ásamt skemmtistað.  Fyrirtækið hét fyrst Skiphóll svo var rekstrinum breytt og skiptist í Snekkjan (skemmtistaðurinn) og Skútan (eldhúsið og kaffiterían).

Árið 1982 var ákveðið að breyta rekstrinum enn frekar og var skemmtistaðurinn Snekkjan seld, en Skútan færð um set á Dalshraun, þar sem starfrækt var veisluþjónusta ásamt veislusal, og jafnframt var farið af meiri krafti í matarbakkaþjónustu fyrir fyrirtæki, sem hafði þegar verið byrjað á í Strandgötunni, í dag sjáum við mörgum fyrirtækjum og mötuneytum fyrir mat í hádeginu.

Árið 1992 flutti fyrirtækið í eigið húsnæði að Hólshrauni 3 þar sem við erum enn þann dag í dag og rekum ennþá alhliða kröftuga veisluþjónustu.

Árið 2005 á þrítugsafmæli reksturs Skútunnar hefur aftur orðið breyting hjá okkur, ákveðið var að aðskilja rekstur matarbakkaþjónustuna og veisluþjónustuna og nýtt nafn er komið hjá okkur, Veislulist er fyrir veisluþjónustu en nafnið Skútan verður áfram hjá okkur en þá fyrir rekstur matarbakkanna.

Hjá okkur hafa yfir árin um 20 matreiðslumenn verið á námssamning og orðið matreiðslumenn, höfum við tvo matreiðslumenn sem hafa fengið hæstu einkunn í matreiðslunámi á Íslandi, Birgir Pálsson og einn nemi sem var hjá okkur.  Hjá okkur starfa 4 matreiðslumenn auk 5 aðstoðarmanna í eldhúsi og 1 á skrifstofu.  Við eigum stóran og dyggan viðskiptamannahóp þar sem sumir hafa verslað við okkur síðan 1975.

Við sjáum um allar gerðir af veislum hversu stór eða smá hún er, á okkar langa tíma í veitingaþjónustu hefur mikil reynsla í matargerð safnast saman og getum við staðist allar kröfur sem fólk leggur til veislugerðar.