Heimilismatur
Bakkamatur
Matseðill fyrir Fyrirtæki :
Afgreiðum hádegismat alla daga ársins.
Mötuneyti
Matseðill fyrir Mötuneyti:
Frá Mánudegi til Föstudags, matur sem er skammtað á staðnum.
Heimaþjónusta
Matseðill mánaðar fyrir heimaþjónustu:
Kópavogs, Hafnarfjaðar og Garðabæjar.
Bakkamatur
Matseðill fyrir Fyrirtæki :
Afgreiðum hádegismat alla daga ársins.
Mötuneyti
Matseðill fyrir Mötuneyti:
Frá Mánudegi til Föstudags, matur sem er skammtað á staðnum.
Heimaþjónusta
Matseðill mánaðar fyrir heimaþjónustu:
Kópavogs, Hafnarfjaðar og Garðabæjar.
Um okkar heimilsmat
Veislulist afgreiðir hádegismat alla daga ársins. Við bjóðum annarsvegar upp á níu valrétti á virkum dögum, sem skiptist í, tveir aðalréttir, fjórir aukaréttir, ein tegund af pizzu, einn heilsurétt og einn Veganrétt.
Svo er hinsvegar hægt að fá mati fyrir mötuneytisskömmtun fyrir stærri staði þar sem lágmarkið er 25 manns, það er skammtað á staðnum sem þið sjáið sjálf um og þá er fyrirkomulagið að allir séu í einum rétti.
Réttir 1,2 og 8 eru breytilegir frá degi til dags, sjá matseðill. Aukaréttirnir og köldu réttirnir (réttir no 3-9) er hægt að fá alla virka daga, um helgar og helgidögum eru réttir 1 – 2 einungis í boði.
Pantanir þurfa að berast fyrir 9:30 á morgnana og um helgar þarf að panta fyrir laugardag og sunnudag samtímis, sama gildir með helgidaga.
Pöntunarfyrirkomulag er með síma, netpóst eða nota netpöntunarkerfi eftir því sem ykkur hentar.
Ástæður þess að við erum með glúten fríar sósur og súpur
Undanfarinn ár hafa aukist til okkar fyrirspurnir um að hafa glúten frían mat og helst þetta í hendur við flestar rannsóknir sem sýna að glútenóþol (Celiac Disease) er í sífelldri aukningu undanfarin ár. Til að skilja hvað verið er að meina með glútenóþol að þá greinist hún í tvennt ‘intolerance’ og ‘sensitivity’ en er hér á Íslandi notað óþol sem samnefnari yfir báðar þessar greiningar, þetta lýsir sér á einfaldan hátt sem vangetu til að þola eða melta glúten. Marga sjúkdómar er farið að tengja við ‘ofnotkun’, ef hægt er að nota það orð, á hveiti og hveitivörum sem er orðin gríðalega mikil í okkar nútímaheimi. Glúten er í vörum allt frá frosnu grænmeti, tilbúnum matvörum og alveg til varalitar.
Því höfum við ákveðið að minnka hveiti hjá okkur og einfalda matreiðsluna aðeins með því að í stað þess að hafa tvennar súpur eða sósur í það að gera allar súpur og sósur glútenfríar, þó svo að við erum enn með matvörur þar sem raspur er utan um eða brauð með mat, en þessi skref með sósur og súpur er aðeins hugsuð til að minnka aðeins neysluna á hveiti.
Kostir þess að fyrir fólk að minnka hveitið í mataræði hjá sér eru t.d. betri melting (þ.e. auking upptaka vítamína), aukin orka og bætt þarmaflóra, allt atriði sem ættu að koma sér vel fyrir alla.
Það er ekki ráðlagt af sérfræðingum að borða algjörlega glútenfrítt ef þú ert ekki með glútenóþol en í góðu lagi að reyna að minnka hveitið sem við neytum. Kornvörur eru mikilvægar í fæði og eru uppspretta stórs hluta trefjaefna í fæðinu og veita mikilvæg bætiefni, kornvörur hafa mikið næringargildi eins og heilhveiti, bygg, hafrar, hrísgrjón og maís, sem eru góð fyrir okkur í hófi en hveitikornið er samt óhollasta kornið af þeim öllum.
Þannig að það sem við erum að reyna að gera í okkar matreiðslu er aðeins að reyna að minnka óhollar vörur, t.d. eins og hveitið, sykur, salt, majónesssósur og slíkt, án þess að útiloka þessar vörur algjörlega úr okkar matreiðslu en þetta eru allt vörur sem við höfum farið í endurskoðun á miðað við nútíma heilsustaðla, sem kemur sér vel fyrir okkar neytendur því þeim ætti að líða vel af matnum.